Sælt veri fólkið 
Ég er að spá í að koma með eitt blogg svona í tilefni dagsins
það er annas bara allt gott að frétta af mér, búin að ná mér eftir
skíta ælupest sem ákvað að herja á mig um helgina...get nú ekki
sagt að ég hafi fagnað komu hennar niett gríðar mikið
En annas
þá gengur lífið bara sinn vanagang ég er bara ástfangin upp fyrir
haus og niður fyrir hné rétt eins og síðasliðna mánuði
Svo er
bara fullt að gera í skólanum, gomma af prófum og verkefnum
framundan
gríðarlega skemmtilegt...eða þannig.
En hún Íris mín kitlaði mig víst fyrir doldið löngu síðan og
Adda gerði það víst líka, svo ég er að velta fyrir mér að svara
þessu kitli 
4 störf sem ég hef unnið um ævina:
Barnapía, Unglingavinnan, Hrafnista og Skóbúð
4 bíomyndir sem eg gæti horft á aftur og aftur:
Æi ég veit það ekki...ég segi Lögregluskóla myndirnar,
fyrir Snorra minn 
4 Staðir sem ég hef búið á:
Krummahólar, Rimahverfið, hjá ömmu gömlu eitt sumar og svo flyt
ég stundum til Snorra í smá tíma ef það telst með 
4 sjónvarpsþættir sem mér likar:
Humm...æi ég veit það ekki 
4 síður sem eg skoða daglega fyrir utan blogg:
msund.is og svo hin og þessi blogg, svo kíkir mar á póstinn sinn

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Ítalía, Krít, Flateyri, Ísafjörður, Lónsöræfi
4 matarkyns sem ég held uppá:
Mér finnst grillmatur voða góður, kjúlli stendur alltaf fyrir
sínu og svo er hún móðir mín alveg ágætis kokkur þannig að ég held
bara upp á það sem hún gerir...nema þegar hún fer í
tilraunastarfsemi
4 staðir sem ég vildi frekar vera á núna:
Heitu baði, útlöndum, undir sæng að kúra og svo bara hér 
4 bloggarar sem ég kitla:
Ég ætla ekki að kitla neinn 
Jæja þá er komið doldið mikið langt blogg
og ég ætla ekki að
hafa það mikið lengra í bili...sæl að sinni 